Ferill 692. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1034 — 692. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um áfengis- og vímuefnavanda eldri borgara.
Frá Guðrúnu Sigríði Ágústsdóttur.
1. Liggja fyrir gögn um tíðni áfengis- og vímuefnavanda meðal eldri borgara? Ef svo er ekki, hefur ráðherra kannað möguleika og kosti þess að gera úttekt á áfengis- og vímuefnavanda meðal eldri borgara?
2. Hvaða úrræði eru til staðar fyrir eldri borgara með áfengis- eða vímuefnavanda, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsbyggðinni?
3. Hvaða úrræði eru til staðar fyrir íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem eiga við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða?
Skriflegt svar óskast.